Lottóauglýsing!!

Auglýsing fyrir Lottó.

 

Lottó er 25 ára á árinu og í tilefni af því er Íslensk getspá að vinna að nýrri auglýsingarherferð. Ein auglýsingin hefst á því að maður fer inn í verslun og kaupir sér lottómiða og labbar síðan út á götu. Ætlunin er að fylla götuna af íþróttafólki á öllum aldri sem þakkar fyrir stuðninginn síðustu 25 ár.

 

Stefnt er að því að taka auglýsinguna upp laugardaginn 9. apríl eða sunnudaginn 10. apríl. Ef veður verður óhagstætt þá daga færist upptakan yfir á helgina 16. og 17. apríl.

 

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands leitar til íþróttafélaga innan ÍSÍ að safna saman hópi af íþróttafólki frá sínu félagi til þess að taka þátt í auglýsingunni. Markmiðið er að fá um 400 manns til að mæta.

 

Íþróttafólkið þarf að vera á staðnum í 4 – 6 klst, en stefnt er að því að upptakan fari fram frá 10:00 – 20:00 á þeim degi sem verður fyrir valinu.

 Hópurinn má vera blanda af stelpum og strákum 10 ára og eldri eða einhver flokkur innan félagsins sem hefur áhuga á að mæta.

 

Nánari upplýsingar hjá Hörpu Rún í síma 8685196.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

eg er 16 ára gamall strákur bý í árbænum  og hef áhuga á íþróttum og koma fram á sjónvarpi ;D !!

Guðjón Dagur Diego Hjartarson (IP-tala skráð) 4.4.2011 kl. 19:02

2 identicon

ÉG VIL KOMA FRAM Í SJÓNVARPI OG HEF ROOOOSA GAMAN AF ÍÞRÓTTUM OG BARA ÖLLU SYNGJA OG LEIKA OG GERA MIG AF FÍFLI ! ÞAÐ LÝSIR MÉR BARA NOKKUÐ VEL MUNDI ÉG NÚ BARA SEGJA !!!!!!!

-STÍNA STUUUÐ ! :D

Kristín Rut Eysteinsdóttir (IP-tala skráð) 4.4.2011 kl. 22:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband