Bloggfærslur mánaðarins, febrúar 2012

Aðalfundur Garps á Öskudaginn

Ágætu sveitungar nær og fjær,

 Aðalfundur Íþróttafélagsins Garps verður haldinn á Laugalandi öskudaginn 22. Febrúar kl 20.00. Þeir sem vilja mega koma í búningum:-)

Dagskrá hefðbundin aðalfundarstörf

Dagskrá fundarins:

1. Formaður setur fund

2. Kosinn fundarstjóri og fundaritari

3. Fundargerð síðasta aðalfundar lögð fram til samþykktar

4. Formaður flytur skýrslu stjórnar

5. Gjaldkeri leggur fram og skýrir reikninga

6. Umræður um skýrslu og reikninga, atkvæðagreiðsla

7. Lagabreytingar

8. Kosning: formaður, gjaldkeri, ritari, þrír varamenn, þrír í hverja íþróttanefnd (formaður hverrar nefndar situr í aðalstjórn), tveir skoðunarmenn og einn til vara.

9. Fulltrúar á héraðsþing HSK

10. Árgjald ákveðið

11. Önnur mál

Fjölmennum og stuðlum að áframhaldandi góðu íþróttastarfi. 

Stjórnin

 


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband