HSK mót í blaki

 

Garpur tók þátt í HSK mótinu í blaki sem fram fór á mánudaginn síðasta. Keppendur voru 23 og kepptu í þremur flokkum.

 Í krakkablaki 5.1 (kasta og grípa) kepptu tvö lið og lentu í 3. og 4. sæti og stóðu sig vel. Bættu sig mjög þegar á mótið leið.

 Í krakkablaki 5.3  (uppgjöf, fleygur, grípa, smassa) kepptu tvö lið og lentu þau í 1. og 3. sæti. Glæsilegur árangur þar.

 Í unglingaflokki keppti eitt lið hjá drengjum og lentu þeir í öðru sæti á eftir Dímon í æsispennandi bráðabana.

 

Skemmtilegt mót þar sem krakkarnir stóðu sig vel.

 Laugardaginn 1. maí er svo aldursflokkamót HSK í sundi og mun Garpur senda fjóra keppendur og keppa í fyrsta sinn í langan tíma.

 

Guðni


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband