Íþróttahátíð HSK

Góðan dag.

Langaði að deila með ykkur frábærum árangri keppenda Garps í Þorlákshöfn á laugardaginn! Við áttum 5 keppendur á aldursflokkamóti 11-14 ára. Það er skemmst frá því að segja að þau stóðu sig hvert öðru betur, náðu í heil 96 stig og vörðu með glæsibrag þriðja sætið sem Garpur náði á þessu móti í vetur. Aðeins stórlið Selfyssinga og heimamanna í Þór urðu fyrir ofan okkur. Þær Jóhanna Sigrún, Sóley og Dagný Rós gerðu sér lítið fyrir og unnu stigakeppni 11 ára stelpna og fengu 48 stig! Í flokki tólf ára stelpna náði Jana Lind í heil 27 stig á sínu fyrsta móti fyrir Garp og í flokki 14 ára stráka náði Guðjón Andri í 21 stig þrátt fyrir að vera nánast á annarri löppinni hálft mótið. Þvílíkir snillingar!!!

Svo má ekki gleyma keppendum okkar á héraðsleikum 10 ára og yngri. Þær Guðný Karen og Hildur fóru þar á kostum og voru meðal efstu manna í flokki 10 ára stelpna. Verður ekki leiðinlegt þegar þær verða 11 ára og fara að raða inn stigunum líka!

Að lokum, takk krakkar fyrir frábært mót, frábæra stemmingu og frábæra frammistöðu. Það eru forréttindi að fá að vera með svona hópi. Til hamingju Garpur!!

Kveðja Halli Gísli :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband