30.11.2011 | 11:58
Góðar Garpsfréttir
Garpur sendi 13 keppendur á HSK mót í borðtennis á Hvolsvelli föstudaginn 25. nóvember sl. Oft verið fleiri og nú vantaði inn í eldri hópinn en þetta gengur upp og niður.
Krakkarnir stóðu sig vel að vanda og hér eru úrslit garpa:
Jana Lind Ellertsdóttir lenti í 4. sæti af 14 keppendum í flokki 12 ára og yngri.
Smári Valur Guðmarsson lenti í 1. sæti af 15 keppendum í sama flokki.
Í flokk 13-14 ára kepptu 10 keppendur og okkar strákar fjórir röðuðu sér í efstu fjögur sætin.
1. sæti Elvar Kristinn Benediktsson
2. sæti Ómar Högni Guðmarsson
3-4 sæti Óttar Haraldsson
3-4 sæti Daníel Freyr Steinarsson
Í flokk 13-14 ára stúlkna kepptu 5 keppendur.
Þar í 4. sæti lenti Guðbjörg Viðja Antonsdóttir.
Við óskum þessum efnilegu görpum til hamingju með árangurinn og þökkum Guðna Sighvats góða fylgd á mótið:-)
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.