1.9.2010 | 21:49
Rangæingamót!
Sæl öll.
Nú er búið að ákveða að Rangæingamót í frjálsum utanhúss verður haldið á íþróttavellinum á Hellu laugardaginn 4. september kl. 13.00. Keppt verður í eftirtöldum greinum:
10 ára og yngri keppa í 60 m.hlaupi, langstökki með atrennu og skutlukasti.
11-12 ára keppa í 60 m. hlaupi, langstökki, kúluvarpi og 800 metra hlaupi.
13-14 ára keppa í 100 m. hlaupi, langstökki, kúluvarpi og 800 metra hlaupi.
15 ára og eldri keppa í sömu greinum.
Það er hægt að skrá sig á staðnum og nú skulum við sýna okkar allra besta og mæta öll sem eitt! Einnig vil ég biðja foreldra að veita okkur nú góða hjálp á lokamóti sumarsins, það verður mikil þörf fyrir starfsmenn og það er upplagt að keyra krakkana og taka svo virkan þátt í mótinu og skemmtuninni. Við erum með flottustu keppendurna, ef við verðum líka með flottasta stuðningsliðið þá er ljóst hvert er flottasta liðið í Rangárvallasýslunni! :)
Pabbar og mömmur, ef þið getið starfað þá væri frábært ef þið hefðuð samband við mig í síma 8969539. Það er svo gott að hafa einhverja sem maður veit um fyrirfram.
Sjáumst á laugardag, Halli Gísli
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.